Í nóvember á síðasta ári fylltist Silfurberg í hörpu fjórum sinnum á Heiðurstónleikum Freddie Mercury en 20 ár voru liðin frá því hann lést. Flutt voru öll þekktustu lög Mercury bæði frá sólóferli hans og með hljómsveitinni Queen. Gestir risu ítrekað úr sætum og fögnuðu ákaft eftir frábæran og kraftmiklann fluttning. Eftir tónleikana höfðu margir það á orði að þeir hefðu aldrei séð jafn góða og metnaðarfulla tónleika á Íslandi. Vegna mikillar eftirspurnar var ákveðið að færa tónleikana í stóra sal Hörpu, Eldborg og verða þeir haldnir síðasta vetrardag miðvikudagskvöldið 18. apríl 2012 kl. 19:30 og 22:00. Þar stíga á stokk sem fyrr Eiríkur Hauksson, Magni, Friðrik Ómar, Eyþór Ingi, Matthías Matthíasson og Hulda Björk Garðarsdóttir óperusöngkona. Ásamt þessum föngulega hópi söngvara stjórnar Þórir Úlfarsson 12 manna hljóm-og raddsveit.
Miðasala er á www.midi.is, www.harpa.is og í síma 528-5050.
Miðaverð er 7900/6400/4900
Recent Comments